Vakin fyrir fimmAgnes Björk Guðmundsdóttir

Já þetta er víst það nýjasta hjá syni mínum að vakna á milli fimm og sex alla morgna... stundum hefur hann gerst svo grófur að ná mér fram úr klukkan hálf fimm. Þetta er eiginlega alveg djöfullegt þar sem að ég fer ekkert fyrr að sofa á kvöldin.

En allavega þá fjölgar svona líka í kringum mann, María og Stebbi áttu gullfallega prinsessu TIL HAMINGJU!!
Lena og Gunni fengu svo prins TIL HAMINGJU
Og svo veit ég ekki betur en að Júlla sé komin af stað, mér heyrðist það á henni í gærkvöldi, kanski er hún bara búin að þessu stelpan.

Júró slabbið í kvöld og ég hef ekkert sérstakan áhuga á því, fynnst þetta allt hálf slöpp lög... ég skammaðist mín nú bara fyrir að vera íslendingur þegar að lufsan hún Sylvía Nótt steig á sviðið. Þetta er orðið einum of fyrir lifandi löngu.

Jæja var að fá sms frá Júllu og hún er komin upp á spítala og meira veit ég ekki... nú er ég bara spennt!!!

En ég er að hugsa um að leggja mig aðeins sei sei ef að það hentar honum Stefáni Inga að leggja sig með útkeyrðri móður sinni.

Já ég fattaði ekki að láta vita á gamla ógeðs blogginu mínu að ég væri búin að færa mig... best að ég geri það svo að það sé kanski smá smuga á því að það lesi þetta einhver Skömmustulegur

Agnes out

Enn ein bloggsíðanAgnes Björk Guðmundsdóttir

Þá er að prufa þetta... þetta verður stutt færsla að þessu sinni en vonandi gengur mér vel að blogga hérna í framtíðinni.
Það er allt gott að frétta og ég skrifa meira á morgun!

Tjá Tjá
Agnes

Aðalvalmynd

Prinsinn minn

Auglýsing

Gagnasafn

Leit

Hittumst á msn

gnesa@hotmail.com